Júlí Heiðar og Þórdís Björk gáfu dóttur sinni nafn

Júlí Heiðar, Þórdís Björk og barnahópurinn.
Júlí Heiðar, Þórdís Björk og barnahópurinn. Ljósmynd/Elísabet Blöndal.

Leik- og söngkonan Þórdís Björk Þorfinnsdóttir og sambýlismaður hennar, Júlí Heiðar Halldórsson tónlistarmaður, gáfu dóttur sinni nafn um helgina. Stúlkan, sem kom í heiminn þann 9. maí, fékk nafnið Kolfinna Anna Kolka. 

Þórdís Björk og Júlí Heiðar tilkynntu nafnið í sameiginlegri færslu á Instagram og birtu fallegar fjölskyldumyndir frá skírnardeginum. 

„Dóttir okkar fékk nafnið sitt á þessum sólríka haustdegi. Kolfinna Anna Kolka Júlídóttir. Þrjú nöfn eins og Bjartur stóri bróðir,“ skrifaði parið við færsluna. 

Stúlk­an er fyrsta barn for­eldra sinna sam­an en bæði eiga þau börn úr fyrri samböndum. 

Fjölskylduvefur mbl.is óskar fjölskyldunni hjartanlega til hamingju!

View this post on Instagram

A post shared by DÍSA (@thordisbjork)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert