Seltjarnarnes

Fim.
22. ágúst
Fimmtudagur
22. ágúst

Félagsstarf

Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 07.10. Kaffikrókur á Skólabraut kl. 9.00. Létt leikfimi í salnum kl. 11.00. Bingó í salnum á Skólabraut kl. 13.30. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Ath. fimmtudaginn 29. ágúst kl. 15.00 verður vöfflukaffi í salnum á Skólabraut. Farið verður yfir dagskrá og viðburði næstu mánaða og skráning og upplýsingar um námskeið. Allir hjartanlega velkomnir.

Fös.
23. ágúst
Föstudagur
23. ágúst

Félagsstarf

Kaffikrókur á Skólabraut kl. 9.00. Vekjum athygli á hádegistónleikum í Seltjarnarneskirkju þriðjudaginn 27. ágúst kl. 12.00. Flutt verður leikandi létt dagskrá þar sem Sigríður Ósk Kristjánsdóttir og Hallveig Rúnarsdóttir syngja við undirleik Hrannar Þráinsdóttur og Matthíasar Stefánssonar. Eldri borgarar fá 20% afslátt af miðaverði. Allir velkomnir.