Seltjarnarnes

Þri.
27. ágúst
Þriðjudagur
27. ágúst

Félagsstarf

Vatnsleikfimi kl. 07.10. Kaffikrókur Skólabraut kl. 9.00. Pútt á flötinni við Skólabraut kl. 10.30. Minnum á hádegistónleikana Sumarsól sem fram fara í Seltjarnarneskirkju í dag kl. 12.00. Frábærar söngkonur og hljóðfæraleikarar. 20% afsláttur fyrir eldri borgara. Ath. nk. fimmtudag verður Vöfflukaffi, dagskrárkynning og skráning í salnum á Skólabraut kl. 15.00. Allir hjartanlega velkomnir.

Mið.
28. ágúst
Miðvikudagur
28. ágúst

Félagsstarf

Kaffikrókur á Skólabraut frá kl. 9.00. Á morgun fimmtudag verður vöfflukaffi í salnum á Skólabraut kl. 15.00. Allir hjartanlega velkomnir. Dagskrárblaðið fyrir tímabilið ágúst - desember liggur frammi. Farið verður yfir dagskrána framundan. Skráning á námskeið og viðburði. Velkomið að taka með sér gesti. Almenn dagskrá hefst síðan samkvæmt dagskrárblaði mánudaginn 2. september.