Grafarvogskirkja

Þri.
22. október
Þriðjudagur
22. október

Félagsstarf eldri borgara

Opið hús fyrir eldri borgara er þriðjudag 22. október kl. 13:00-15:30. Gestur dagsins er Sveindís Anna félagsráðgjafi sem heldur erindi um Ólafíu Jóhannsdóttur. Við spilum og spjöllum. Að opna húsinu loknu er kaffi og meðlæti. Kyrrðarstund hefst kl. 12:00. Hugljúf stund með tónlist, fyrirbænum og altarisgöngu. Í boði eftir stundina er léttur hádegisverður gegn vægu gjaldi.