Björk Guðmundsdóttir er nú á tónleikaferð um Evrópu til að kynna nýju plötuna sína, Vespertine. Í gærkvöldi söng hún í Metropole-leikhúsinu í Lausanne í Sviss og verður með aðra tónleika þar annað kvöld. Hún verður með tónleika í Alte Oper í Frankfurt á þriðjudag og síðan verður hún í Frakklandi, Hollandi og Belgíu áður en hún heldur til Bandaríkjanna 2. október.