Hæstiréttur Nebraska-ríkis Bandaríkjanna hafnaði í dag beiðni um að hækka skaðabætur sem dæmdar voru móður stúlku sem myndirnar „Boys Don't Cry“ og „Brandon Teena Story“ fjölluðu um. Teena Brandon, 21 árs, klæddi sig sem karlmaður og notaði nafnið Brandon Teena þegar tveir kunningjar hennar, John Lotter og Marvin Nissen, komust að því að hún var í raun kona.
Hún sagði lögreglustjóranum á staðnum frá því að mennirnir tveir hefðu nauðgað sér en þrátt fyrir það voru þeir ekki handteknir. Lotter og Nissen myrtu hana og tvo aðra viku seinna.
JoAnn Brandon fór upphaflega fram á 350.000 Bandaríkjadali, 29,8 milljónir króna, í miskabætur og sagði aðskiptaleysi Charles Laux, lögreglustjóra Richardson, hafi leitt til morðsins á dóttur hennar. Dómari í undirrétti dæmi JoAnn 17.360 dali, tæpar 1,5 milljónir króna, í miskabætur og sagði að með lífsstíl sínum hefði Teena Brandon að hluta til verið ábyrg fyrir dauða sínum.
Í álitsgerð sem hæstiréttur Nebraska sendi frá sér á síðasta ári sagði að Laux hefði verið meira umhugað um kynferði Teena Brandon en að tryggja öryggi hennar, þegar hún kærði nauðgunina. Að því er segir í úrskurðinum frá síðasta ári sýni Laux skeytingarleysi þegar hann kallaði Teena Brandon „það“ og handtók ekki þegar í stað hina grunuðu, sem hótuðu að myrða hana ef hún tilkynnti lögreglunni um nauðgunina. JoAnn Brandon voru þá dæmdir 98.223 dalir, eða 8,3 milljónir króna. Þeim dómi var ekki hnekkt í dag og sagði dómari að samband Teena og JoAnn hefði verið stirt.
Lotter hlaut þrefaldan dauðadóm fyrir morðin og bíður aftöku. Nissen bar vitni gegn Lotter og afplánar nú lífstíðardóm. Hvorugur þeirra var ákærður fyrir nauðgun. Laux er fangavörður í fangelsi Tecumseh í Nebraska þar sem Lotter bíður aftöku.