Tatum O'Neal vísar frásögn Jacksons á bug

Tatum O´Neal með fyrrum eiginmanni sínum John McEnroe.
Tatum O´Neal með fyrrum eiginmanni sínum John McEnroe.

Leikkonan Tatum O'Neal hefur vísað á bug fullyrðingum Michael Jacksons um að hún hafi reynt að draga hann á tálar þegar þau voru unglingar. Þá segist hún einungis hafa verið tólf ára er hún átti vingott við hann.

„Hann hefur mjög auðugt ímyndunarafl. Frásögn hans af sambandi okkar var mjög ónákvæm," sagði leikkonan í þættinum Access Hollywood á NBC-sjónvarpsstöðinni en Jackson greindi frá því í umdeildum heimildarþætti Martins Bashirs að Tatum hafi verið fyrsta kærasta sín og að hún hafi boðið sér heim til sín þar sem hún hafi byrjað að hneppa frá honum skyrtunni. Hann hafi hins vegar verið of feiminn til að svara ástleitni hennar.

„Michael kom heim til mín þegar faðir minn var heima en þegar ég var tólf ára var ég hvorki jafn þroskuð né fáguð eins og hann heldur fram," sagði hún.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur verið særður - það er gott að viðurkenna það. Nú þarftu að fá að sleikja sárin. Engum stendur ógn af metnaði þínum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Anna Bågstam
3
Lucinda Riley og Harry Whittaker
4
Elly Griffiths
5
Ragnar Jónasson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur verið særður - það er gott að viðurkenna það. Nú þarftu að fá að sleikja sárin. Engum stendur ógn af metnaði þínum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Anna Bågstam
3
Lucinda Riley og Harry Whittaker
4
Elly Griffiths
5
Ragnar Jónasson