Bandarískur lýtalæknir heldur því fram í nýrri bandarískri heimildarmynd að söngvarinn Michael Jackson hafi látið gera rúmlega fimmtíu lýtaaðgerðir á andliti sínu en í heimildarmyndinni "Living With Michael Jackson" segist söngvarinn einungis hafa látið gera tvær aðgerðir á nefi sínu.
Læknirinn Wallace Goodstein, sem vann lengi með lækni Jacksons, heldur þessu fram í heimildarmyndinni "Michael Jackson Unmasked" en í myndinni er fjallað um breytingar sem Jackson er sagður hafa látið gera á andliti sínu.