Bandaríski tónlistarmaðurinn Michael Jackson hefur hætt við áform sín um að koma fram á Ischgl-skíðasvæðinu í Austurríki um næstu helgi og er ástæðan sögð óvissa í heimsmálunum. Til hafði staðið að Jackson kæmi fram á tónleikum á skíðasvæðinu og kynnti auk þess mannúðarsamtök sem einbeita sér að því að aðstoða börn.