Michael Jackson er sagður hafa rekið alla ráðgjafa sína vegna fjaðrafoksins í kringum heimildarmyndina "Living with Michael Jackson" eftir breska sjónvarpsmanninn Martin Bashir.
Söngvarinn er sagður óttast að myndin hafi bundið enda á feril hans. Þá er hann sagður álasa ráðgjöfum sínum fyrir að sjá það ekki fyrir hversu illa hann kæmi út í myndinni og fyrir að koma ekki í veg fyrir að hann heimilaði gerð hennar.