Krikket er mikið stundað í ríkjum breska konungdæmisins. Íslendingar hafa hingað til ekki þótt liðtækir í krikketi, enda ekki margir sem hafa helgað sig þessum langdregna - en skemmtilega - að sögn kunnugra - leik. Hver leikur í krikketi getur tekið allt upp í fjóra daga.
Elliðaárdalurinn var gerður að æfingasvæði nokkurra krikketspilara á föstudagskvöld þegar þeir munduðu kylfurnar í undirbúningi fyrir komu ensks liðs um næstu helgi. Að sögn Ragnars Kristinssonar sem er einn af forsprökkum íslensku krikketspilaranna taka þeir félagar leikinn mátulega alvarlega og segir þá hafa það að leiðarljósi að "lúkka vel" fremur en nokkuð annað.