Þriðjungur landsmanna fylgdist með lokamóti Formúlu 1 í Japan samkvæmt nýrri mælingu IMG Gallup, eða 35,1%. Það er mesta áhorf sem mælst hefur á kappaksturinn í Japan frá því farið var að sýna Formúlu 1 hérlendis.
Hlutfallið skiptist þannig að 46% voru karlmenn en 24% kvenmenn. Stærsti áhorfendahópurinn var á aldrinum 35-44 ára, eða 44,2%. Á aldrinum 16-24 ára fylgdust 43% með, í hópnum 25-34 ára fylgdust 35,8% með japanska kappakstrinum. Í aldursflokknum 45-54 ára, 28,8%, og 55-75 ára, 24,7%.
Áhorfsdreifing er tiltölulega jöfn miðað við aðra sjónvarpsþætti þar sem skarpari skil eru venjulega milli aldurshópa.
Á næsta ári verða 18 mót Formúlu 1 mót á dagskrá og hefst tímabilið í byrjun mars. Meðal nýjunga verður ný útfærsla tímataka þar sem tvær umferðir verða eknar í stað einnar. Þá verður ekið á nýjum brautum í Kína og Barein og Spa í Belgíu verður aftur á dagskrá.