Breski söngvarinn George Michael hefur sagt að Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sé hættulegur og að Verkamannaflokkurinn eigi að losa sig við leiðtoga sinn. Michael, sem hefur hingað til stutt Verkamannflokkinn, segist óska þess að flokkurinn hafi kjark til þess að koma Blair frá fyrir næstu kosningar.
"Ég tel mikilvægt fyrir heiminn að hann fari. Hann er hættulegur ef tekið er mið af alþjóðamálum...," segir Michael sem hefur einkum gagnrýnt Blair fyrir afstöðu hans í deilunni um Írak. Michael hefur látið í veðri vaka að Blair hafi látið George W. Bush, forseta Bandaríkjanna, leiða sig á villigötur í málefnum Íraks.