Búist er við að bandaríski popparinn Michael Jackson muni lýsa yfir sakleysi sínu þegar honum verður lesin formleg ákæra fyrir rétti í dag um að hann hafi misnotað tólf ára dreng kynferðislega. Jackson, 45 ára, hefur sagt upp tveimur lögmönnum sínum og nýjustu fregnir herma að hann muni ekki nota lífverði úr samtökunum Þjóð íslams. Ákæran sem Jackson verður lesin í Santa Maria í Kaliforníu í dag er sett fram að fjölskipuðum kviðdómi.