Brennuvargar kveiktu í jólageitinni í Gävle í Svíþjóð í nótt. Þessi jólageit, sem kaupmenn í borginni hafa reist ár hvert undanfarna áratugi, hefur aðeins tíu sinnum fengið að standa óáreitt yfir jólin frá árinu 1966. Árið 1976 lenti bíll á geitinni, árið 1997 kviknaði í henni út frá flugeldum og á árunum 1998-2001 var kveikt í geitinni. Brennuvargarnir hafa sjaldan náðst en árið 2001 kveikti 51 árs gamall Bandaríkjamaður í geitinni á Þorláksmessu. Hann náðist og sat 18 daga í fangelsi.