George Clooney og Christina Aguilera hafa samþykkt að koma fram á tónleikum sem sjónvarpað verður í Bandaríkjunum síðar í mánuðinum. Samhliða útsendingunni fer fram símasöfnun til styrktar fórnarlömbum hamfaranna í Asíu á annan dag jóla. Sheryl Crow hefur einnig tilkynnt um þátttöku sína í þættinum sem sýndur verður á NBC sjónvarpsstöðinni 15. janúar.
Frá þessu er greint í New York Post. Þar segir að „mörg stór nöfn“ hafi áhuga á að koma fram í þættinum.