Bítillinn fyrrverandi, Paul McCartney, hefur gefið 1 milljón punda til fórnarlamba náttúruhamfaranna í Suður-Asíu. Sir Paul og Heather Mills, eiginkona hans, tilkynntu í gær að hjálparstofnanir hefðu þegar fengið peningana í hendur. Upphæðin samsvarar um 118 milljónum íslenskra króna.
Heimildamaður sem þekkir vel til parsins sagði: „Hamfarirnar höfðu áhrif á þau líkt og flesta aðra. Þau vildu leggja sitt af mörkum og taka þátt í að auka framlag Breta.“
Talsmaður hjálparsamtaka sem tóku við peningunum sagði að þeir ættu eftir að koma í góðar þarfir. Peningarnir yrðu meðal annars notaðir til þess að koma hreinu drykkjarvatni til fólks á hamfarasvæðunum og til þess að senda björgunarlið til Aceh héraðs í Indónesíu - en það er eitt þeirra svæða sem varð verst úti í hamförunum.