Sjónvarpsstöðin Skjár einn hefur tryggt sér einkaleyfi á að gera íslenska útgáfu af hinum bandarísku sjónvarpsþáttunum Bachelor og Bachelorette, sem sýndir hafa verið á stöðinni við allnokkrar vinsældir.
Áætlað er að fyrsta þáttaröðin, þar sem íslenskur piparsveinn mun velja sér kvonfang úr röðum ungra íslenskra kvenna, hefji göngu sína í haust.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er áætlað að hér verði um að ræða viðamesta verkefni sem Skjár einn hefur ráðist í./