Leikarinn Matthew Perry og Rachel Dunn, kærasta hans til tveggja ára, eru hætt saman,að því er Ananova greinir frá og hefur eftir IOL.com.
Perry, sem er þekktur fyrir leik sinn í þáttunum um Vini, og Dunn, höfðu verið saman í tvö ár. Þau munu hafa tekið sameiginlega ákvörðun um að slíta sambandinu.