Hljómsveitin Sigur Rós mun hefja væntanlega hljómleikaferð sína um Bandaríkin á eyjunni Hawai þann 9. ágúst næstkomandi. Áður en hljómsveitin fer til Bandaríkjanna mun hún þó halda tónleika víðsvegar um Evrópu, í Japan og í Ástralíu. Hljómsveitin hefur lokið upptökum á fjórðu plötu sinni sem kemur út í haust.