Eva Longoria, sem fer með eitt aðalhlutverkið í sjónvarpsþáttunum Aðþrengdar eiginkonur, á að sögn við þrálátan höfuðverk að stríða og hefur þetta valdið nokkrum töfum á tökum á nýrri þáttaröð. Í síðustu viku fékk Eva járnstöng í höfuðið við tökur á atriði og missti meðvitund. Meðleikkona hennar, Teri Hatcher, segist hafa sent henni hjálm fullan af Milky Way og Snickers því að hún borði svo mikið af sælgæti.
Tökum á þáttunum hefur verið frestað til að Eva geti jafnað sig, segir Ananova.com og hefur eftir Contactmusic.com. Haft er eftir Teri: „Hún er að jafna sig. Hún er ekki alveg orðin góð, en það er í lagi með hana, hún er búin að fara í rannsóknir. Nú þarf hún bara að ná sér og við bíðum öll á meðan hún gerir það.“