Á síðunni www.supernovafans.com er Magni hlutskarpastur í netkosningu um hver muni hreppa söngvarasæti hljómsveitarinnar Supernova í sjónvarpsþáttunum Rockstar. Það skal hins vegar tekið fram að afar mjótt er á munum og þegar þetta er skrifað leiðir Magni kosninguna með 34,94% atkvæða, örfáum hundraðshlutum á undan Dilönu sem hefur hlotið 34,67% atkvæða.
Þau tvö mega samt vel við una því næsti keppandi þar á eftir er enginn annar en hrokagikkurinn Lukas Rossi með einungis 15% kosningu.