Zuleyka Rivera Mendoza frá Puerto Rico var krýnd ungfrú alheimur í nótt en úrslit fegurðarsamkeppninnar fóru fram í Los Angeles. Þegar Mendoza hafði lokið við að sitja fyrir svörum á blaðamannafundi eftir keppnina leið yfir hana en að sögn Reutersfréttastofunnar náði fegurðardrottningin sér fljótt aftur eftir að hafa fengið að drekka.