Með frammistöðu sinni í raunveruleikaþættinum Rockstar Supernova, hefur Magni Ásgeirsson tryggt sér eina milljón króna í styrk frá SPRON. Í síðustu viku veitti SPRON Magna fimm hundruð þúsund krónur í styrk þegar hann komst í fimm manna úrslit og hét jafnframt á Magna, sömu upphæð ef hann kæmist í úrslitaþáttinn.
SPRON hefur jafnframt heitið á Magna fimm hundruð þúsund krónum til viðbótar ef hann stendur uppi sem sigurvegari þáttarins og verður valinn söngvari hljómsveitarinnar Supernova, að því er segir í tilkynningu.
Ef Magni fer alla leið mun heildarframlag SPRON til hans því nema 1,5 milljónum króna.