Söngkonan Pink er í sárum eftir að Elvis dó – þ.e. hundurinn hennar. Pink kom að Elvis þar sem hann flaut í sundlauginni hennar og reyndi að lífga hann við, en án árangurs. Hundurinn hafði oft synt í lauginni.
Það var dóttir hins eina sanna Elvis, Lisa Marie, sem gaf Pink Elvis.
Vinur Pink sagði við The Sun: „Fyrir Pink var Elvis eins og barn. Hún er miður sín."