Hundruð þúsunda manna tóku þátt í Notting Hill hátíðinni í Lundúnum í dag. Um er að ræða tveggja daga hátíð, sem hófst í gær, og minnir um margt á suður-ameríska kjötkveðjuhátíð. Hátíðin í ár er tileinkuð því, að 200 ár eru liðin frá því Bretar bönnuðu þrælaverslun. Talið er að 250 þúsund manns hafi tekið þátt í hátíðinni í gær og um 600 þúsund í dag enda er veðrið óvenju gott.