Bretar minnast þess í dag að tíu ár eru liðin frá því að Díana prinsessa lét lífið í bílslysi í París. Synir Díönu William og Harry munu minnast hennar við guðsþjónustu í Guards' Chapel í nágrenni Buckingham-hallar og munu faðir þeirra Karl Bretaprins og móðir hans Elísebet Englandsdrottning einnig verða viðstödd minningarathöfnina. Þetta kemur fram á fréttavef BBC.
Einnig verða systkini Díönu, Gordon Brown forsætisráðherra og tónlistarmaðurinn Sir Elton John viðstödd athöfnina en Camilla, síðari eiginkona Karls, hætti á síðustu stundu við að þaka þátt í athöfninni þar sem fyrirhuguð þátttaka hennar mætti harðri andspyrnu meðal almennings í landinu.
Minningarsamkomur verða einnig haldnar um prinsessuna víða annars staðar í Bretlandi.