Vikan birtir nú um áramótin völvuspá að vanda og segist völvan m.a. sjá deilur innan ríkisstjórnarinnar og allar líkur séu á að upp úr samstarfi stjórnarflokkanna slitni. Líklega taki sambræðingur vinstri aflanna við. Þá segir völvan að sér kæmi ekki á óvart að meirihlutinn í Reykjavíkurborg springi á árinu.
Þá spáir völvan hruni á peningamarkaði, basli á verðbréfamarkaði og að stóru fjármálafyrirtækin tapi miklu. Segist völvan ekki sjá mikla vaxtalækkun á árinu. Þá muni krónan valda talsverðum vandræðum.
Völvan segist sjá eldgos og náttúruhamfarir á fyrri hluta ársins. Þá segist hún sjá sviptingar í kringum Ríkisútvarpið en þó einkum Stöð 2 og 365 miðla. Segir hún að Morgunblaðið muni halda sjó á árinu.
Völvan spáir einnig fyrir um alþjóðamál og segist telja að Barack Obama verði næsti forseti Bandaríkjanna. Hún segir að tvö stór hryðjuverk verði framin á árinu.