Missti handlegginn eftir að vinka stelpum

Átralskur maður á von á því að missa handlegginn eftir að hann var að veifa tveim stelpum út úr bíl og handleggur hans nær slitnaði af þegar annar bíll keyrði framhjá.

Maðurinn sem er tvítugur var farþegi í pallbíl í Bunbury í Ástralíu þegar hann ákvað að vinka tveim konum á bílaþvottastöð.

En um leið og maðurinn stakk handleggnum út úr bílnum tók bílstjórinn hægribeygju og handleggur mannsins varð fyrir bíl sem kom á móti og rifnaði nær af.

„Handleggur hans var nokkurn veginn slitinn af og læknar telja að það þurfi að aflima hann", sagði lögreglumaður á staðnum. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Til að komast úr sporunum þarftu að líta upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Til að komast úr sporunum þarftu að líta upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar