Frænka Britneyjar Spears, Alli Sims, óttast að breski ljósmyndarinn Adnan Ghalib, sem hefur fylgt Britneyju næstum hvert fótmál að undanförnu, hafi illt eitt í hyggju.
„Ég held að Adnan sé ekki góður maður,“ sagði Sims. „Ég held að hann hafi bara illt í hyggju. Ég hef slæma tilfinningu fyrir honum og hann vekur mér óhug. Ég vildi að hann myndi hverfa á brott,“ sagði hún.
Næsta fyrirtaka í forræðismáli Britneyjar og Kevins Federlines er eftir mánuð.