Leita þurfti aðstoðar slökkviliðs þegar átta ára drengur festist í handjárnum sem hann fann í svefnherbergi móður sinnar.
„Litli strákurinn kom á slökkvistöðina með ömmu sinni og handjárnin voru föst við annan úlnlið hans,“ segir Dan French, slökkviliðsmaður í Portsmouth. Beita þurfti klippum á járnin, enda voru þau úr sérhertu stáli og alls ekki hugsuð sem leikföng.