Alls hafa 9.500 manns tryggt sér miða á tónleika Erics Clapton sem fram fara í Egilshöll þann 8. ágúst.
Um 8.000 manns höfðu þegar keypt miða kl. 11 í morgun og var talan komin upp í 9.500 kl. 14 í dag. Aðgöngumiðar í fremra svæðið eru búnir og verulega farið að ganga á aðgöngumiða í aftara svæðið.