Britney Spears hefur verið boðið að leika í uppfærslu á „Sporvagninum Girnd" eða A Streetcar Named Desire, eftir Tennessee Williams í leikhúshverfinu West End í London.
Heimildamaður breska dagblaðsins Daily Star segir Britney hafa komið til greina í langan tíma fyrir hlutverk Blanche Dubois, eldri systurinnar sem á við persónulega erfiðleika að stríða. Þátttaka Britney hefur hins vegar þótt of mikil áhætta, þar sem mikið hefur gengið á í lífi hennar að undanförnu.
Gestahlutverk Britneyar í bandaríska þættinum How I Met Your Mother eða „Svona hitti ég móður þína, sem sýndur var í vikunni, breytti viðhorfi manna og þótti hún standa sig vel í hlutverkinu. Hún er sögð hafa hæfileika og hafa sýnt góðan leik.
„Britney er ef til vill fremur ung til þess að leika Blanche en hún væri fullkomin í átakanlegt hlutverk Blanche sem notar áfengi til þess að fela sársauka," segir í Daily Star.