Nýtt lag frá Paris Hilton er nú komið í spilun, en það heitir „My BFF“, sem stendur fyrir „Best Friend Forever“. Lagið verður þemalagið í nýjasta raunveruleikaþætti hennar, Paris Hilton's My New BFF, en Hilton samdi það ásamt unnusta sínum, rokkaranum Benji Madden úr hljómsveitinni Good Charlotte. „Þetta lag fjallar um vináttuna og ég held að allir geti fundið sig í því. Þetta er mjög gleðilegt lag,“ segir Hilton.
Í áðurnefndum raunveruleikaþætti berjast annars 16 stúlkur og tveir strákar um að verða vinur eða vinkona hótelerfingjans fræga og fær sigurvegarinn svo að fara með henni í hin ýmsu samkvæmi.