Salim Haini frá Alsír hefur verið kallaður maðurinn sem borðar allt. Naglar, gler og ljósaperur er á meðal þess sem Haini lætur ofan í sig. Allt þetta er gert í þeim tilgangi að öðlast frægð og viðurkenningu.
Haini er vanur því að fólk safnist í kringum sig þegar hann sýnir fram á listir sínar. Hann segist vilja éta sér leið inn í Heimsmetabók Guinness.