Nei, þetta er ekki grín. Selma Björnsdóttir hyggst fylla skarð Regínu Óskar Óskarsdóttur (sem komin er sjö mánuði á leið) þegar Eurobandið kemur fram í Sjallanum á Akureyri um næstu helgi.
Eurobandið stendur nú annars í ströngu við að hljóðrita tyrkneskt lag sem vann keppnina árið 2003 og heitir „Everyway that I can“. Já, hver man ekki eftir því.
Það er að sjálfsögðu Evróvisjón-pinninn Örlygur Smári sem vinnur lagið ásamt hljómsveitinni en von er á því í spilun á útvarpsstöðvunum á næstu vikum. Eurobandið ætlar sér stóra hluti í sumar og stefnir á að halda tónleika í öllum helstu kaupstöðum landsins.