Munu Dylan og McCartney syngja dúett?

Bob Dylan
Bob Dylan mbl.is

Bob Dylan langar til þess að syngja dúett með Paul McCartney. „Það væri afar spennandi að vinna með Paul. En leiðir okkar þurfa að liggja saman til þess að það geti gengið upp,“ er haft eftir Bob Dylan.

Vinir McCartney hafa eftir honum að Dylan sé uppáhalds núlifandi lagahöfundur hans og að hann myndi svo sannarlega vilja vinna með Dylan. „Ef af samstarfi þeirra Bobs og Dylans yrði þá væri um sögulegan viðburð að ræða í tónlistarsögunni. Það er mjög líklegt að Paul hefði áhuga á slíku samstarfi,“ er haft eftir ónafngreindum heimildarmanni. 

Verði samstarfið að veruleika væri það þó ekki í fyrsta skiptið sem Dylan myndi vinna með fyrrum Bítli, því hann var um árabil meðlimur í súpergrúppunni The Traveling Wilburys með George Harrison heitnum. Aðrir meðlimir hljómsveitarinnar voru þeir Roy Orbison, Tom Petty og Jeff Lynne.

Paul McCartney
Paul McCartney NIGEL RODDIS
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Leyfðu öðrum að njóta kunnáttu þinnar en varastu allt oflæti, því fyrr en varir ert þú sá sem lærir af öðrum. Ekki hafa áhyggjur af því að þurfa að sanna þig.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Kathryn Hughes
3
Steindór Ívarsson
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Carla Kovach
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Leyfðu öðrum að njóta kunnáttu þinnar en varastu allt oflæti, því fyrr en varir ert þú sá sem lærir af öðrum. Ekki hafa áhyggjur af því að þurfa að sanna þig.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Kathryn Hughes
3
Steindór Ívarsson
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Carla Kovach