Þórunn Antonía Magnúsdóttir mun syngja hlutverk þýsku söngkonunnar Nico í verkefni sem bandaríski tónlistarmaðurinn Beck vinnur nú að.
„Ég var búin að vera í Los Angeles í þrjá mánuði og var að spila með hljómsveit sem heitir The New Number 2 sem sonur George Harrisons, Dhani Harrison, leiðir. Við spiluðum til dæmis á Coachella í vor og fórum svo í lítinn túr um Kaliforníu. En einn daginn fæ ég sms frá vini mínum þar sem hann spyr mig hvort ég vilji syngja með Beck. Ég sagði að sjálfsögðu já og var svo stuttu seinna mætt í hljóðverið þar sem Nigel Godrich [upptökustjóri], Beck og hljómsveitin hans biðu eftir mér,“ segir Þórunn
Tónlistarverkefnið gengur undir nafninu Plötuklúbburinn (Record Club) og gengur út á að lóðsa ýmsa kollega Becks í hljóðver og taka upp í heild sinni frægar plötur tónlistarsögunnar. Það hefur verið hljótt um verkefnið, en í fyrradag var fyrst sagt frá því á vefsíðu tónlistartímaritsins Rolling Stone.
Fyrsta plata Becks í þessari röð var að endurgera hina goðsagnakenndu breiðskífu Velvet Underground & Nico frá árinu 1967, en fyrir hafði hann ráðgert að fá tónlistarmanninn Devendra Banhart til að syngja rödd Nicos.
„Beck þakkaði mér ægilega vel fyrir að bregðast svo skjótt við því Devendra Banhart komst ekki og svo vorum við, áður ég vissi af, búin að taka upp heila plötu á einum degi. Þetta gekk allt ótrúlega vel og var allan tímann mjög afslappað; fyrsta upptaka notuð og þar fram eftir götunum.“
Þórunn spilar einnig á sítar og hristu á upptökunum. Hún ber Beck mjög vel söguna, en hann hefur lengi verið tónlistarblaðamönnum hulin ráðgáta.
„Hann er afskaplega ljúfur og góður maður og með sérstaklega góðan húmor. Maður heyrir alltaf miklar kjaftasögur um svona frægt fólk, en hann var í einu orði sagt yndislegur. Við höfðum mjög gaman af því að syngja saman.“
Aðspurð hvort hún hafi ekki fundið til taugatitrings, segir Þórunn að það hafi varla gefist tími til.
„Þegar maður hendir sér út í svona verkefni þá finnur maður ekki fyrir stressi en ég var e.t.v. meira stressuð eftir á.“
„Ég veit það ekki. Hann sagði að hann hefði mikinn áhuga á að vinna með mér ef tækifæri gæfist en við fórum ekki dýpra í það. Ég var voða lítið að pæla í því þarna í hljóðverinu.“
Þórunn Antonía er stödd hér á landi þessa dagana og hyggst njóta þess að vera heima í sumar.
„Ég er hægt að rólega að koma saman minni eigin sólóplötu en ég hef verið á svo mikilli ferð og svo miklu flugi að ég ætla að leyfa mér að slaka á. Þetta kemur þegar það kemur.“
Á heimasíðu Becks (www.beck.com) er þegar að finna myndband frá upptökunum þar sem Þórunn Antonía sést og heyrist syngja Velvet Underground-lagið „Sunday Morning“ með Beck.