Breska blaðið Daily Mirror fullyrðir í dag, að bandaríska poppstjarnan Michael Jackson hafi verið jarðsettur með leynd um helgina í grafreit í Hollywood Hills. Jackson lést 25. júní sl.
Blaðið hefur þetta eftir ónanfgreindum heimildarmönnum og fullyrðir, að Jackson hafi verið jarðsettur með leynd og án athafnar. Fjölskylda Jacksons hafi talið minningarathöfn og tónleika, sem fóru fram í Los Angeles í júlí, fullnægjandi.
Reynt verður að halda því leyndu hvar Jackson er grafinn í garðinum og segir Daily Mirror, að ættingjar Jacksons séu tilbúnir til að flytja lík hans ef svo ber undir.