Ragnhildur Steinunn og Eva María óléttar

Ragnhildur Steinnunn og Eva María í peysunum sem vöktu mikið …
Ragnhildur Steinnunn og Eva María í peysunum sem vöktu mikið umtal og athygli í fyrra. mbl.is/Eggert

Sjónvarpskonan og fegurðardrottningin Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og unnusti hennar Haukur Ingi Guðnason, knattspyrnumaður í liði Keflavíkur og kennari í sálfræði við Háskóla Íslands, eiga von á sínu fyrsta barni.

Ragnhildur er komin fjóra mánuði á leið. Ragnhildur stýrir Söngvakeppni Sjónvarpsins með Evu Maríu Jónsdóttur og fór fyrsta kvöld undankeppninnar fram laugardaginn síðastliðinn.

Og ekki er nóg með það heldur á Eva María einnig von á barni með unnusta sínum Sigurpáli Scheving hjartalækni. Og þær eru settar með 15 daga millibili. Ragnhildur er sett í júní en Eva María í júlí. Til hamingju öll!

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hjól lífsins halda áfram að snúast þó maður fyrirgefi óvini sínum. Skap þitt er þannig þessa dagana að þú ættir að telja upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hjól lífsins halda áfram að snúast þó maður fyrirgefi óvini sínum. Skap þitt er þannig þessa dagana að þú ættir að telja upp að tíu áður en þú svarar einhverjum fullum hálsi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Hugrún Björnsdóttir
2
Torill Thorup
3
Anna Margrét Sigurðardóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir