Hæsti maður heims, Tyrkinn Sultan Kósen, hitti í dag He Pingping, minnsta mann heims, í Istanbul en þeir voru þar báðir til að kynna nýjustu útgáfu Heimsmetabókar Guinness.
Kósen, sem heimsótti Ísland á síðasta ári, er 2,46 metrar á hæð en Pinging er 74,6 sentimetrar. Hann er 21 árs og býr í Kína.