Latibær leitar nú logandi ljósi að nýrri Sollu stirðu í tilefni af stórtónleikum í Höllinni 27. mars.
Prufur verða keyrðar á Hótel Hilton Reykjavík Nordica næsta laugardag og munu tvær þriggja manna dómnefndir verða að störfum allan daginn.
Víst er að full þörf er á sé tillit tekið til áhuga Íslendinga á söngprufum af þessu tagi.