Hljómsveitin XIII, sem Hallur Ingólfsson leiðir, gaf á mánudaginn, 13. september, út safnplötuna Black Box þar sem farið er yfir feril þessarar merku sveitar í máli og myndum.
Haldið verður upp á þennan merkisáfanga með útgáfuteiti og tónleikum á Sódómu Reykjavík, að því er fram kemur í nánari umfjöllun um þessa útgáfu í Morgunblaðinu í dag.