„Það er alveg frábært að leika á móti Ingó og miklu skemmtilegra en ég bjóst við,“ segir leikkonan Ólöf Jara Skagfjörð sem fer með eitt af aðahlutverkunum í söngleiknum Buddy Holly.
Þegar hún er beðin um að uppljóstra skítugu leyndarmáli um Veðurguðinn Ingó segir hún: „Hann mætir iðulega of seint á æfingar og hann er alltaf svangur.“
Ólöf Jara prýðir forsíðu nýjasta tölublaðs Monitor sem kemur út á morgun. Í viðtalinu ræðir hún meðal annars um leiklistina, höfnunina sem fylgdi því að komast ekki inn í Listaháskóla Íslands og hvernig það var að takast á við skilnað foreldra sinna, Guðrúnar Gunnarsdóttur og Valgeirs Skagfjörð.