Ungur hommi kennir íslenskum konum munngælur

„Við getum sagt að þetta séu best geymdu leyndarmál samkynhneigðra karlmanna. Við erum með sömu tólin og vitum hvað við viljum,“ segir Hákon Hildibrand sem hefur undanfarnar vikur kennt konum að fullnægja karlmönnum og gefa góðar munngælur.

Hákon heldur námskeið ásamt spákonunni Höllu Himintungl og nefnast þau Á trúnó með Höllu og Hákoni. „Hún fer í gegnum stjörnuspekina með þeim, kynlífið og stjörnumerkin og hvernig konur passa við væntanlega maka. Svo tek ég við og kenni þeim alls konar leyndardóma karlmannsholdsins,“ segir Hákon og nefnir „deepthroat með bönunum“ sem dæmi um það sem er á kennsluskránni.

„Það er alveg magnað, ég hef haft 65 ára gamlar konur á námskeiði sem láta bananann renna ofan í hálsinn á sér með glöðu geði,“ segir Hákon sem kemur fram í dragi á námskeiðunum. „Það hjálpar þeim mikið að þetta sé sett fram í þessum búningi. Um leið og það er búið að taka kynið í burtu og þær eru komnar með hálfgert frík fyrir framan sig þá er þetta bara skemmtilegt,“ segir Hákon og hlær.

Monitor kíkti í heimsókn til Hákons á vinnustofu hans þar sem námskeiðin fara jafnan fram.

Meira í Monitor. Blaðið má lesa í rafrænni útgáfu hér.

Hákon Hildibrand kennir konum það sem þær læra ekki í …
Hákon Hildibrand kennir konum það sem þær læra ekki í skóla. Allan Sigurðsson
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Til að komast úr sporunum þarftu að líta upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Til að komast úr sporunum þarftu að líta upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar