Mbl sjónvarp byrjaði í dag að sýna stutta netþætti. Þrír þættir hófu göngu sína í dag en þeir verða sex talsins til að byrja með. Meðal þátta sem hófu göngu sína í dag er þátturinn Nilli, en Nilli sló eftirminnilega í gegn þegar hann tók tónlistarmanninn Berndsen tali á Austurvelli og rappaði svo fyrir alþjóð.
Þá verður fylgst með lífi Völu Grand í þættinum Veröld Völu Grand og loks tónlistargagnrýni með Arnari Eggerti. Auk þessara þátta mun Mbl sjónvarp sýna þáttinn Fyrstu skrefin, sem áður var sýndur á SkjáEinum, nú í umsjón Birgittu Haukdal, auk tískuþáttarins Rokk og rúllur og tónlistarþáttarins Hljómur.