Dönsku æringjarnir Frank Hvamm og Casper Christensen, sem hafa undanfarin ár meðal annars skemmt Íslendingum með uppátækjum sínum, láta sér nú ekki sjónvarpsþætti nægja lengur. Um miðjan desember verður frumsýnd heil kvikmynd, Klovn - The Movie, í Danmörku.
Búið er að birta opinbera stiklu úr myndinni og ef marka má hana eltir óheppnin þá Frank og Casper sem aldrei fyrr.