Maður sem gekk nakinn í svefni inn í herbergi samstarfskonu sinnar fékk dágóða summu í skaðabætur eftir að hafa verið ásakaður um dónaskap.
Donal Kinsella kærði fyrrverandi vinnuveitanda sinn eftir að fyrirtækið gaf út tilkynningu þess efnis að svefnganga Kinsella í ferð fyrirtækisins til Afríku hefði verið kynferðisleg áreitni.
Lögfræðingur Kinsella sagði fyrirtækið hafa gefið í skyn að Kinsella hafi reynt að þröngva sér á samstarfskonu sína um miðja nótt, nakinn.
Kinsella fékk einn og hálfan milljarð króna í skaðabætur fyrir meiðyrðin og sagðist hann mjög ánægður með úrskurðinn í viðtali. „Nafn mitt hefur verið hreinsað, ég er sáttur.“