„Ég efast um að fólk geri sér grein fyrir því hversu mikil viðurkenning þetta er fyrir mig”, segir Vala Grand en forsvarsmenn fegurðarsamkeppni Íslands hafa boðið henni að koma í prufu fyrir næstu Ungfrú Ísland keppni. Arnar Laufdal, eigandi keppninnar, segir að keppninni hafi borist ábending um Völu og að hann fagni komu hennar í prufur sem fara fram um helgina.
Í nýjum þætti af Veröld Völu Grand, sem horfa má á hér, má sjá ótrúleg viðbrögð Völu þegar hún fær tölvupóstinn frá skipuleggjendum keppninnar.
„Ó mæ god, þetta er búinn að vera minn æðsti draumur frá því að ég var lítil!“, segir Vala aðspurð um viðbrögð við tilboðinu. „Ég mæti pottþétt“, segir Vala.