Leikari úr Ljótu Bettý myrti móður sína

Michael L. Brea.
Michael L. Brea.

Leikari úr þáttunum um Ljótu Bettý, Michael L. Brea, hefur verið handtekinn í Brooklyn í New York, grunaður um að hafa haldið móður sinni í gíslingu og síðan myrt hana með samúræja-sverði.

Vitni segjast hafa heyrt mikinn hávaða frá íbúð þeirra mæðgina í Prospect Heights í Brooklyn og að Brea hafi hrópað orð úr Biblíunni, eins og „iðrun“. Var íbúðin útötuð í blóði er lögregla kom á vettvang og veitti leikarinn nokkra mótspyrnu í fyrstu.

Kom þetta nágrönnum í fjölbýlishúsinu í opna skjöldu, þeir segja Brea hafa verið rólyndismann en hann hafi verið mikill aðdáandi austurlenskra bardagaíþrótta.

Michael L. Brea er 31 árs, ættaður frá Haíti, og hefur farið með hlutverk í sjónvarpsþáttunum Ugly Betty, Ljóta Bettý, sem Sjónvarpið hefur sýnt. Hann hefur einnig leikið í kvikmyndum eins og Step-Up 3-D leikið í auglýsingum Coca Cola.

Leikkonan America Ferrera hefur leikið Ljótu Betty.
Leikkonan America Ferrera hefur leikið Ljótu Betty. Reuters
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Til að komast úr sporunum þarftu að líta upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú finnur sannarlega til góðmennsku í garð annarra og vilt hjálpa þeim sem minna mega sín. Til að komast úr sporunum þarftu að líta upp.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar